Articles:Stofan

Útgáfa frá 8. september 2020 kl. 12:54 eftir Andrum (Spjall | framlög) Útgáfa frá 8. september 2020 kl. 12:54 eftir Andrum (Spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

andrúm er teymi arkitekta sem hefur í gegnum árin byggt upp mikla reynslu í hönnun opinberra bygginga og verkefna fyrir einstaklinga. Hefur góð samvinna hönnuðar og viðskiptavinar verið meginstefið.

Við leggjum áherslu á samkeppnir því þær eru góð leið til að opna á og prófa nýjar hugmyndir í keppnisumhverfi. Þar gefst tækifæri til að fínstilla og aðlaga skissur yfir í hið praktíska og áþreifanlega og hafa þannig margar verðlaunatillögur hópsins orðið að fullunnum verkefnum.

Til þess þarf reynslu og skilning á hinu byggða og næmi til að miðla hugmyndum milli viðskiptavinar, hönnuðar og handverksfólks sem sér um endanlega útfærslu. Að uppfylla þannig væntingar og þarfir viðskiptavinarins er því í senn ferðlag og hið ljóðræna takmark.