Articles:Miðborgarskóli

(Ný síða: == Miðborgarskóli == {{lang |is=Í kjölfar á haganlega útfærðu deiliskipulagi kemur fram tillaga sem er eins og hún hafi einhvernveginn alltaf verið þarna. Samt má segja a...)
 
 
Lína 20: Lína 20:
  
  
{{image|midborgarskoli01.jpg}}
+
{{image|midborgarskoli03.jpg}}
  
  
Lína 26: Lína 26:
  
  
{{image|midborgarskoli.jpg}}
+
{{image|midborgarskoli01.jpg}}

Núverandi breyting frá og með 6. júlí 2021 kl. 13:20

Miðborgarskóli

Í kjölfar á haganlega útfærðu deiliskipulagi kemur fram tillaga sem er eins og hún hafi einhvernveginn alltaf verið þarna. Samt má segja að hér sé á ferðinni nýsköpun í bestu merkingu þess orðs - ný hugsun með vellíðan, virkni og heilbrigði að leiðarljósi.

Nýr leikskóli brúar hið viðkvæma bil á milli fæðingarorlofs og leikskóla - og hlúir á sama tíma að foreldrum ungra barna með nýrri nálgun - fjölskyldumiðstöð. Með því að tengja alla starfsemina við miðjuna er líka tryggt að allir, bæði börn og fullorðnir, mynda sjónræn og huglæg tengsl – ennfremur eykur það hagkvæmni og sveigjanleika í starfseminni.

Leikskólinn er ævintýraheimur, þar fá börn bæði að nema og ærslast, jafnt inni sem úti - því börnin læra líka mikið í gegnum leikinn. Fjölbreytt rými og umhverfi gefa mikið frelsi til þroska, með valkostum við allra hæfi og góðu aðgengi fyrir alla - hrein áskorun í hreyfingu!


Nýr leikskóli á Njálsgöturóló í Reykjavík


2-3. verðlaun í opinni samkeppni árið 2020.