Articles:Miðborgarskóli

Útgáfa frá 6. júlí 2021 kl. 13:20 eftir Andrum (Spjall | framlög) Útgáfa frá 6. júlí 2021 kl. 13:20 eftir Andrum (Spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Miðborgarskóli

Í kjölfar á haganlega útfærðu deiliskipulagi kemur fram tillaga sem er eins og hún hafi einhvernveginn alltaf verið þarna. Samt má segja að hér sé á ferðinni nýsköpun í bestu merkingu þess orðs - ný hugsun með vellíðan, virkni og heilbrigði að leiðarljósi.

Nýr leikskóli brúar hið viðkvæma bil á milli fæðingarorlofs og leikskóla - og hlúir á sama tíma að foreldrum ungra barna með nýrri nálgun - fjölskyldumiðstöð. Með því að tengja alla starfsemina við miðjuna er líka tryggt að allir, bæði börn og fullorðnir, mynda sjónræn og huglæg tengsl – ennfremur eykur það hagkvæmni og sveigjanleika í starfseminni.

Leikskólinn er ævintýraheimur, þar fá börn bæði að nema og ærslast, jafnt inni sem úti - því börnin læra líka mikið í gegnum leikinn. Fjölbreytt rými og umhverfi gefa mikið frelsi til þroska, með valkostum við allra hæfi og góðu aðgengi fyrir alla - hrein áskorun í hreyfingu!


Nýr leikskóli á Njálsgöturóló í Reykjavík


2-3. verðlaun í opinni samkeppni árið 2020.